Arabíska er semískt tungumál sem er upprunið á Arabíuskaganum, en breiddist yfir stærra svæði með útbreiðslu Íslam og er nú talað víðasthvar alla leið frá Marokkó til Íraks. Arabíska er eitt helsta sameiningartákn þeirra sem í dag kalla sig Araba sem eru mun fleiri en þeir sem búa á Arabíuskaganum. Arabísku má skipta í tvennt, bókmenntaarabísku og talaða arabísku. Sú fyrrnefnda er notuð í formlegu máli, af flestum fjölmiðlum og í bókum því sem næst allstaðar þar sem arabíska er töluð og er sú arabíska sem Kóraninn notar. Síðarnefnda gerðin er hinsvegar ekki ein gerð heldur hinar ýmsu mállýskur sem talaðar eru þvert yfir svæðið. Þær eru mjög misjafnar og skiljast jafnvel ekki af þeim sem tala aðrar mállýskur.
Arabíska er skrifuð með arabíska stafrófinu, t.d. er arabíska skrifað svona á arabísku: عربية. Þeir tölustafir (0 1 2 3 4 5 6 7 8 9) og það talnakerfi sem nú er notað um allan heim kom til Evrópu í gegnum arabísku og eru tölurnar því gjarnan kallaðar arabískar tölur en í reynd eru þær upprunnar frá Indlandi og í arabísku eru tölurnar einmitt kallaðar „indverskar tölur“. Arabíska er rituð frá hægri til vinstri líkt og hebreska og hindí, en tölur eru aftur á móti ritaðar frá vinstri til hægri.
Arabies | Arabisc sprǣc | لغة عربية | Idioma Árabe | Арабски език | Arapski jezik | Llengua àrab | Arabština | Arabeg | Arabisk | Arabische Sprache | Αραβική γλώσσα | Arabic language | Araba lingvo | Idioma árabe | Araabia keel | Arabiera | عربی | Arabian kieli | Arabe | Arabysk | Araibis | Lingua árabe | ʻŌlelo ʻAlapia | ערבית | अरबी भाषा | Arapski jezik | Arab nyelv | Lingua arabe | Bahasa Arab | Arabiana linguo | Lingua araba | アラビア語 | არაბული ენა | ಅರಬ್ಬೀ ಭಾಷೆ | 아랍어 | Arabek | Lingua Arabica | Arabisch | Arabų kalba | Arābu valoda | Арапски јазик | Bahasa Arab | Araabsche Spraak | Arabisch | Arabisk språk | Arabisk språk | Język arabski | Língua árabe | Limba arabă | Арабский язык | Arapski jezik | Arabic language | Arabčina | Arabščina | Gjuha Arabe | Арапски језик | Arabiska | Kiarabu | ภาษาอาหรับ | Wikang Arabo | Arapça | Ğäräp tele | Арабська мова | Tiếng Ả Rập | 阿拉伯语 | A-la-pek-gí
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Arabíska".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world