Volfram (eða tungsten) er frumefni með efnatáknið W og er númer 74 í lotukerfinu.
Volfram er mjög harður hliðarmálmur sem að er stálgrár yfir í hvítan á litinn. Volfram finnst í nokkrum steintegundum, þar á meðal volframíti og scheelíti, og er markvert fyrir kröftuga efniseiginleika sína. Í hreinu formi er það notað aðallega í raffræðilegum tilgangi, en mörg efnasambönd og málmblöndur þess eru víða notuð (þá aðallega í glóarþræði í ljósaperur og í framúrstefnulegar ofurmálmblöndur).
Almennir eiginleikar
Hreint volfram er stálgrár yfir í tinhvítan á litinn og er harður málmur. Það er hægt að saga það í sundur með járnsög þegar það er mjög hreint (það er stökkt og erfitt til vinnslu í óhreinu formi) og er að öðru leyti unnið með því að móta, teygja eða pressa það. Þetta frumefni hefur hæsta
bræðslumark (3422 °
C), lægsta
gufuþrýsting og hæsta
togþol, við hitastig yfir 1650 °C, allra málma. Viðmót þess við tæringu er framúrskarandi og virka eingöngu ólífrænar
sýrur á það, og þá bara rétt aðeins. Volfram myndar verndandi
oxíð við snertingu við loft. Þegar það er blandað í litlum mæli við
stál, eykur það styrk stálsins all verulega.
Notkun
Volfram er málmur með stórt notkunarsvið. Mest er það notað í
volframkarbíð (W
2C) í
sindruðum harðmálmum. Sindraðir harðmálmar eru slitþolin efni sem að notuð eru í málmiðnaði,
námugreftri,
olíu- og byggingariðnaði. Volfram er einnig mikið notað í glóðaþræði í
ljósaperur og
útvarpslampa, ásamt
rafskautum, vegna þess að hægt er að draga það í fíngerðann vír með hátt bræðslumark.
Önnur not:
- Harka og þéttleiki þess málms gerir hann tilvalinn í framleiðslu á þungmálmblöndur sem notaðir eru í vígbúnað, varmagleypi, lóð og mótvægi.
- Hár þéttleiki gerir það tilvalinn í gerð pílna og er stundum allt að 80% af efnisinnihaldi.
- Stál í háhraðatæki eru oft blönduð með volfram, þarsem volframstál inniheldur allt að 18% volfram.
- Ofurmálmblöndur sem innihalda þennan málm eru notaðar í túrbínublöð, stáláhöld, og slitþolna hluti og húðanir.
- Volframefnablöndur eru notaðar í stað blýs í byssukúlur.
- Volframefnasambönd eru notuð í hvata, ólífræn litarefni, og volfram tvísúlfíð háhita smurningu sem að eru stöðugar upp að 500 °C.
- Sökum þess að varmaþennsla þess er svipuð gleri, er það notað til að búa til gler-málm þéttingar.
Frumefni | Hliðarmálmar
تنجستن | Tungstè | Wolfram | Wolfram | Wolfram | Tungsten | Volframo | Wolframio | Volfram | Volframi | Tungstène | טונגסטן | Volfram | Volfrám | Wolframo | Tungsteno | タングステン | 텅스텐 | Tûngsten | Wolfram | Volframas | Volframs | Wolfraam | Wolfram | Wolfram | Wolfram | Tungstênio | Вольфрам | Volfrám | Volfram | Волфрам | Volfram | ทังสเตน | Volfram | ۋولفرام | Вольфрам | 钨