Vetni er frumefni með efnatáknið H og er númer eitt í lotukerfinu. Við staðalaðstæður er það litlaust, ómálmkennt, lyktarlaust, eingilt og mjög eldfimt tvíatóma gas. Vetni er léttasta og algengasta frumefnið í alheiminum. Það finnst í vatni og í öllum lífrænum efnasamböndum. Vetni verkar á efnafræðilegan hátt við næstum hvaða annað frumefni sem til er. Er stjörnur eru í meginröð sinni, eru uppistaða þeirra mestmegnis vetni í formi rafgass. Þetta frumefni er notað í framleiðslu á ammóníaki, sem gas í loftför, sem annarskonar eldsneyti og nýlega sem orkugjafi fyrir efnarafla.
Í rannsóknarstofum er vetni framleitt við efnahvörf sýru á málma eins og sink. Vetni er yfirleitt framleitt í stærri stíl í iðnaði með gufuumvarpi náttúrulegs gass. Rafgreining vatns er einföld aðferð en hagfræðilega afkastalítil í fjöldaframleiðslu. Vísindamenn eru enn að rannsaka nýjar aðferðir til vetnisframleiðslu. Ein aðferð innifelur notkun grænna þörunga. Önnur aðferð sem að lofar góðu felst í breytingu úrefni lífefna, eins og þrúgusykurs (glúkósa) eða sorbitols, sem að hægt er að gera við lágt hitastig með notkun nýs efnahvata.
Þetta frumefni spilar vægamikið hlutverk í að knýja alheiminn í gegnum róteindakeðjuna og kolefnishverfuna. Þetta eru kjarnasamrunaferli sem að skila af sér gríðarlegu magni orku með því að sameina tvær vetnisfrumeindir í eina helínfrumeind.
Hægt er að brenna vetni í brennsluhreyflum og floti af vetnisknúnum bílum er haldið uppi af Chrysler-BMW (sjá Vetnisbíll). Verið er að athuga vetnisknúna efnarafla sem leið til að útvega orku með minna útrennsli en með því að brenna vetni í brennsluhreyflum.
Á Íslandi stendur yfir framtak til að draga úr notkun á olíu með því að nota vetni í hennar stað.
Waterstof | هيدروجين | Hidróxenu | Вадарод | Водород | Hidrogen | Vodík | Hydrogen | Brint | Wasserstoff | Υδρογόνο | Hydrogen | Hidrogeno | Hidrógeno | Vesinik | Hidrogeno | هیدروژن | Vety | Hydrogène | Hidrigin | Haidreagain | Hidróxeno (elemento) | હાઈડ્રોજન | מימן | Vodik | Hidrogén | Hydrogeno | Hidrogen | Hidrogeno | Idrogeno | 水素 | cidro | წყალბადი | 수소 | Hîdrojen | Hydrogenium | Waterstof | Idrojɛ́ní | Vandenilis | Ūdeņradis | Hauwai | Водород | Hidrogen | Waterstoff | Waterstof | Hydrogen | Hydrogen | Idrogèn | Wodór | Hidrogénio | Hidrogen | Водород | Vodik | Hydrogen | Vodík | Vodik | Водоник | Väte | ஹைட்ரஜன் | ไฮโดรเจน | Idroheno | Hidrojen | ھىدروگېن | Водень | آبگر | Hiđrô | Idrodjinne | 氢 | 氫