Tilleiðsla eða aðleiðsla er röksemdafærsla þar sem alhæft er út frá takmörkuðum vitnisburði. Í tilleiðslu styðja forsendurnar niðurstöðuna en tryggja hana ekki.
Dæmið sýnir glögglega eðli tilleiðslu: dregin er almenn ályktun út frá hinu einstaka. En þar sem ályktað er út fyrir forsendurnar er niðurstaðan ekki örugg. Ef við erum ekki viss um að hafa séð hverja einustu kráku í heiminum – sem er ómögulegt í framkvæmd – þá er alltaf mögulegt að til sé ein sem er öðruvísi á litinn. (Það mætti bæta því við skilgreiningu á kráku að hún sé svört; en ef tveir „krákulegir“ fuglar væru nákvæmlega eins fyrir utan litinn, þá myndum við segja að önnur krákan væri svört en hin væri nýtt og sjaldgæft afbrigði t.d. blárrar kráku – við myndum samt sem áður segja að hvort tveggja væri afbrigði kráku.)
Heimspekileg hugtök | Rökfræði | Þekkingarfræði | Vísindaheimspeki
Induktion (metode) | Induktionsschluss | Inductive reasoning | Επαγωγή (Φιλοσοφία) | Induktiva logiko | Induction (logique) | אינדוקציה | Inductie (filosofie) | 帰納 | Induksjon (filosofi) | Индукция (философия) | Indukcija (logika) | Induktion (filosofi) | 归纳法
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Tilleiðsla".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world