Stjórnarskrá er heiti yfir allar þær reglur sem ráða stjórnskipun ríkis. Stjórnarskrá getur verið í formi eins ákveðins skjals eða hún getur verið dreifð í mörgum rituðum textum, hún getur einnig verið óskrifuð að miklu eða öllu leyti, til dæmis geta hefðir og venjur haft stjórnskipulegt gildi og þannig verið hluti af stjórnarskránni.
Þar sem stjórnarskrár eru taldar mikilvægari en almenn lög er yfirleitt leitast við að gera breytingar á þeim erfiðari en á almennum lögum og er það gert með ýmusm hætti. Stundum þarf aukinn meirihluti (2/3, 3/4 o.s.frv.) á löggjafarþingi að samþykkja breytinguna, stundum þarf sama stofnunin að samþykkja breytinguna tvisvar með almennum kosningum á milli, í sambandsríkjum þarf oft ákveðinn fjöldi af aðildarríkjum að leggja blessun sína yfir breytinguna og stundum eru breytingar á stjórnarskránni eða ákveðnum greinum innan hennar óheimilar með öllu.
Stjórnarskrá Bandaríkjanna frá 1787 var með fyrstu stjórnarskránna á þessu formi og sú elsta sem er enn í gildi. Flest ríki hafa í dag stjórnarskrá á þessu formi. Kostur slíkra stjórnarskrárskjala er álitinn vera auðveldara aðgengi hins almenna borgara að stjórnarskránni þar sem reglurnar eru samankomnar á einum stað og þurfa oftast ekki mikillar túlkunar við.
دستور | Конституция | সংবিধান | Constitució | Ústava | Forfatning | Verfassung | Σύνταγμα | Constitution | Konstitucio | Constitución | Põhiseadus | قانون اساسی | Perustuslaki | Constitution | Constitución | חוקה | Ustav | Alkotmány | Konstitusi | Costituzione | 憲法 | კონსტიტუცია | 헌법 | Grondwet | Konstitucija | Konstitūcija | Устав | Perlembagaan | Grondwet | Grunnlov | Konstitusjon | Constitution | Konstytucja | Constituição | Constituţie | Конституция | Constitution | Ústava | Ustava | Устав | Grundlag | Katiba | รัฐธรรมนูญ | Saligang batas | Anayasa | Конституція | 宪法 | Hiàn-hoat
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Stjórnarskrá".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world