Samtenging er óbeygjanlegt smáorð sem tengir saman eða límir einstök orð eða orðasambönd; t.d. hnífur og skeið, þetta er hnífur en hitt er skeið. Samtengingar eru ýmist eitt orð (einyrtar samtengingar) eða fleiri (fleiryrtar eða fleygaðar samtengingar), t.d. og - eða, svo - að, af því að, hvorki - né o.s.frv.
Samtengingar skiptast í tvo aðalflokka eftir setningarhlutverkum:
Mörg orð geta eftir stöðu sinni og merkingu tilheyrt samtengingum eða öðrum orðflokkum. Til dæmis eru orðin þegar, og, síðan ýmist samtengingar eða atviksorð; þegar er atviksorð þegar það merkir undireins, strax en annars samtenging; og er atviksorð þegar það merkir líka, einnig en annars samtenging; síðan er samtenging þegar hægt er að setja eftir í þess stað (t.d. margt hefur gerst síðan við hittumst) enn annars er það atvikorð og má þá setja eftir það í stað þess (t.d. ég hef ekki séð hann síðan).
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Samtenging".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world