article


Fáni Sameinuðu þjóðanna
Opinber tungumál arabíska, enska, franska, kínverska, rússneska og spænska
Aðalritari Kofi Annan (síðan 1997)
Stofnaðar sem stríðsbandalag:
1. janúar 1942
sem alþjóðasamtök:
24. október 1945
Meðlimir 191
Höfuðstöðvar New York-borg, Bandaríkjunum
Vefsvæði www.un.org
Sameinuðu þjóðirnar (S.þ.) eru alþjóðasamtök stofnuð 1945 sem nú hafa 192 aðildarríki. Öll almennt viðurkennd sjálfstæð ríki í heiminum, að Vatíkaninu undanskildu, eru nú meðlimir. Vatíkanið á eina varanlega áheyrnarfulltrúann og getur sóst eftir fullri aðild ef það kýs svo. Önnur byggð svæði í heiminum sem þá standa eftir og ekki eru aðilar eru Vestur-Sahara, Lýðveldið Kína (Tævan) og Heimastjórnarsvæði Palestínumanna, en þau síðastnefndu hafa áheyrnarfulltrúa. Höfuðstöðvar samtakanna eru í New York-borg, þar sem aðildarríkin koma saman á reglulegum fundum til að taka ákvarðanir um margs konar mál sem samtökin koma að. Sameinuðu þjóðirnar skiptast í 6 stofnanir: allsherjarþingið, öryggisráðið, efnahags- og félagsmálaráðið, gæsluverndarráðið, aðalskrifstofuna og alþjóðadómstólinn. Að auki eru fjölmargar undirstofnanir, t.d. UNICEF og WHO. Valdamesti og mest áberandi embættismaður Sameinuðu þjóðanna er aðalritarinn.

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar eftir lok síðari heimsstyrjaldar af sigurvegurum stríðsins í þeirri von að samtökin myndu koma í veg fyrir frekari stríð í framtíðinni vegna sameiginlegra öryggishagsmuna aðildarríkja. Núverandi uppbygging samtakanna ber vott um þær aðstæður sem uppi voru þegar þau voru stofnuð; sérstaklega sér þeirra stað í Öryggisráðinu, þar sem fimm ríki hafa fast sæti og neitunarvald. Þau eru: Alþýðulýðveldið Kína (leysti af hólmi Lýðveldið Kína), Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Rússland (leysti af hólmi Sovétríkin).

Sameinuðu þjóðirnar

Verenigde Nasies | Organizazión d'as Nazions Unitas | الأمم المتحدة | Organización de les Naciones Uníes | Birləşmiş Millətlər Təşkilatı | Арганізацыя Аб'яднаных Нацый | Организация на обединените нации | Unaeted Neisen | Aozadur ar Broadoù Unanet | Ujedinjeni Narodi | Organització de les Nacions Unides | Organizace spojených národů | Cenhedloedd Unedig | Forenede Nationer | Vereinte Nationen | Οργανισμός Ηνωμένων Εθνών | United Nations | Unuiĝintaj Nacioj | Organización de las Naciones Unidas | ÜRO | Nazio Batuen Erakundea | سازمان ملل متحد | Yhdistyneet kansakunnat | Organisation des Nations unies | Organizazion des Nazions Unidis | Feriene Naasjes | Náisiúin Aontaithe | ONU | האומות המאוחדות | संयुक्त राष्ट्र संघ | Ujedinjeni narodi | Egyesült Nemzetek Szervezete | Organisation del Nationes Unite | Perserikatan Bangsa-Bangsa | Dagiti Nagkaykaysa a Pagilian | Unionita Nacioni | Organizzazione delle Nazioni Unite | 国際連合 | გაერთიანებული ერების ორგანიზაცია | ಸಂಯುಕ್ತ ರಾಷ್ಟ್ರ ಸಂಸ್ಥೆ | 국제 연합 | Neteweyên Yekbûyî | Kenedhlow Unys | Nationes Unitae | Vereent Natiounen | Jungtinių Tautų Organizacija | Apvienoto Nāciju Organizācija | Обединети нации | Нэгдсэн Үндэстний Байгууллага | Pertubuhan Bangsa-bangsa Bersatu | Verenigde Naties | Dei sameinte nasjonane | FN | Organizacja Narodów Zjednoczonych | ملګري ملتونه | Organização das Nações Unidas | Organizaţia Naţiunilor Unite | Организация Объединённых Наций | Ujedinjeni narodi | United Nations | Organizácia Spojených národov | Organizacija združenih narodov | Organizata e Kombeve të Bashkuara | Уједињене нације | Förenta nationerna | Umoja wa Mataifa | ஐக்கிய நாடுகள் சபை | สหประชาชาติ | Mga Nagkakaisang Bansa | Birleşmiş Milletler | Організація Об'єднаних Націй | اقوامِ متحدہ | Liên Hiệp Quốc | יו-ען | 联合国 | Liân-ha̍p-kok | 聯合國

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Sameinuðu þjóðirnar".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld