article Related Topics:
Sahara_-_1943 :: Sahara_-_2005 :: Saharanpur :: Saharan_Dust
 

Sahara er önnur stærsta eyðimörk heims (á eftir Suðurskautslandinu) og nær yfir 9.000.000 km2 svæði, eða allan norðurhluta Afríku. Hitinn í eyðimörkinni getur náð 57°C yfir daginn og farið undir frostmark á nóttunni. Sahara er um 2,5 milljón ára gömul. Nafnið kemur frá arabíska orðinu yfir eyðimörk; صحراء (). Sahara skiptist milli landanna Marokkó, Túnis, Alsír, Líbýu, Vestur-Sahara, Máritaníu, Malí, Níger, Tsjad, Egyptalands og Súdan. Hún nær samfellt 4.000 km frá Atlantshafi í vestriRauðahafi í austri, ef Nílardalur er undanskilinn. Frá Miðjarðarhafi og Atlasfjöllum í norðri þangað sem hún mætir sléttunum í Mið-Afríku eru 2000 km. Þar verða skilin milli eyðimerkur og gróðurlendis smám saman ógreinilegri.

Á þessu svæði, sem þekur 27% af álfunni, búa um 2,5 milljónir manna með ólíka menningu, bændur, hirðingjar, veiðimenn og safnarar. Helstu þjóðarbrotin eru Túaregar, Saravar, Márar, Tíbúfólkið, Núbíumenn og Kanúrífólkið. Helstu borgir eru Núaksjott í Máritaníu, Algeirsborg í Alsír, Timbúktú í Malí, Agadez í Níger, Ghat í Líbýu og Faya í Tsjad.

Í Sahara er víða að finna vatn í jörðu, og þar er fjölbreytt dýralíf.

Tengt efni


Sahara

Disierto d'o Sajara | Сахара | Sàhara | Sahara | Sahara | Sahara | Sahara | Saharo | Desierto del Sahara | Sahara | Sahara | Désert du Sahara | An Sahára | Deserto do Sáhara | מדבר סהרה | Sahara | Sahara | Deserto del Sahara | サハラ砂漠 | 사하라 사막 | Sahāras tuksnesis | Sachara | Сахара | Sahara | Sahara | Sahara | Deserto do Saara | Пустыня Сахара | Sahara Desert | Sahara | Сахара | Sahara | சஹாரா | ทะเลทรายซาฮารา | Sara | 撒哈拉沙漠

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Sahara".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld