Lengd Sólarhringsins var upphaflega ákvörðuð út gangi sólar, en samkvæmt jarðmiðjukenningunni sem þá var við lýði var talið að sólin gengi í kringum jörðina. Nú er vitað að sólin gengur ekki í kringum jörðina, heldur er það öfugt (sólmiðjukenningin). Ástæðan fyrir því að sólin virðist ganga í kringum jörðina er sú að jörðin snýst um möndul sinn um það bil einu sinni á hverjum sólarhring.
Sá tími sem það tekur jörðina að snúast einn hring um möndul sinn er raunar ekki nákvæmlega sólarhringur, þar munar fjórum mínútum. Í raun tekur einn möndulsnúningur 23 klukkustundir, 56 mínútur og 4,091 sekúndur. En á þeim tíma sem einn möndulsnúningur tekur, hefur jörðin færst áfram á braut sinni um sólu, og því hefur afstaða jarðar og sólar breyst. Það þýðir að jörðin þarf að snúast örlítið lengra til að sólin virðist á sama stað á himninum. Það tekur 3 mínútur og 55,909 sekúndur.
Þess vegna er sólarhringurinn nákvæmlega 24 klukkustundir (sem eru 1440 mínútur, eða 86400 sekúndur), þótt einn snúningur jarðar sé í raun aðeins styttri. Nú er venja að telja sólarhringinn byrja klukkan 0:00:00 og enda einni sekúndu eftir klukkan 23:59:59, en þá er klukkan annað hvort 24:00:00 eða 0:00:00 næsta sólarhrings og er þessi tími kallaður miðnætti.
Дзень | Ден | Dia | Dag | Tag | Day | Tago | Día | Ööpäev | Egun | Vuorokausi | Jour | Dei | יממה | Hari | Giorno | 日 | Diena | Tonalli | Dag | Dag | Dag | Doba | Dia | День | Day | Dan | Ditë | Dag | Kön | 日
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Sólarhringur".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world