Sófókles (gríska: Σοφοκλης) (496 eða 495 – 406 f.Kr.) var aþenskt harmleikjaskáld. Sófókles tók einnig þátt í stjórnmálum og var herforingi í Pelópsskagastríðinu og leiddi herleiðangur til Samos. Hann var stundum nefndur attíska býflugan vegna „sætleika verka hans“. Sófókles er annar í röðinni af þeim þremur grísku harmleikjaskáldum sem hafa þótt merkust allt frá því 5. öld f.Kr.; hann var nokkrum áratugum yngri en Æskýlos og eilítið eldri en Evripídes. Sófókles keppti opinberlega við bæði Æskýlos og Evripídes í harmleikjagerð og var þeirra sigursælastur.
Sófókles samdi mikinn fjölda harmleikja, um eða yfir 120 leikrit. Leikritin voru send inn í keppni á Díonýsosarhátíðinni en hver höfundur sendi inn þrjá harmleiki og einn satýrleik. Sófókles vann fyrstu verðlaun um 20 sinnum, oftar en nokkurt annað harmleikjaskáld, og ekki er vitað til þess að hann hafi nokkurn tímann lent neðar en í annað sæti.
Margir fræðimenn telja Sófókles mestan harmleikjaskáldanna í Grikklandi til forna, þ.á m. Aristóteles, sem taldi að leikrit Sófóklesar Ödípús konungur vera fyrirmyndardæmi um nær fullkominn harmleik. Einungis sjö leikrita hans eru varðveitt í heild sinni og hálfur satýrleikur . Varðveitt eru brot úr sextíu til níutíu öðrum leikritum. Frægustu verk Sófóklesar eru Þebuleikirnir svonefndu, þ.e. tveir harmleikir um Ödípús og einn um Antígónu, dóttur hans.
Sófókles hlaut menntun í listunum og í „palæstra“ eða glímuskóla. Hann vann til verðlauna í glímu og í tónlist og var sagður þokkafullur og laglegur ungur maður. Þegar hann var sextán ára gamall var hann valinn til þess að fara fyrir kór nakinna drengja á hátíð Aþeninga í tilefni af sigri þeirra á Persum í orrustunni við Salamis árið 480 f.Kr..
Tólf árum síðar tók Sófókles fyrst þátt í leikritakeppninni á Díonýsosarhátíðinni með leikriti sínu Triptolemos. Hann lenti í fyrsta sæti og vann sjálfan Æskýlos. Frægasta leikrit Sófóklesar, Ödípús konungur, lenti einungis í öðru sæti.
Árið 440 f.Kr. var Sófókles kjörinn sem einn af herforingjunum tíu í Aþenu.
Brot leikritsins Satýrarnir (Ikknevtæ) uppgötvuðust í Egyptalandi árið 1907. Það er einn tveggja satýrleikja sem fundist hafa.
Brot leikritsins Afkomendurnir (Epigonoi) fundust í apríl árið 2005 þegar fornfræðingar við Oxford University gátu lesið þau með hjálp innrauðra ljósgeisla sem áður voru notaðir í ljósmyndun frá gervitunglum. Harmleikurinn segir sögu af umsátri um Þebu.
سوفوكليس | Софокъл | Sofokle | Sòfocles | Sofoklés | Sofokles | Sophokles | Σοφοκλής | Sophocles | Sofoklo | Sófocles | Sophokles | Sofokles | Sophocle | סופוקלס | Sofoklo | Szophoklész | Sofocle | ソポクレス | 소포클레스 | Sophocles | Sofoklis | Sofokls | Sophokles | Sofokles | Sofokles | Sófocles | Sofocle | Софокл | Sofokle | Sofokles | Софокле | Sofokles | Софокл | 索福克勒斯
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Sófókles".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world