Riða er arfbundin, ólæknandi smitsjúkdómur sem fyrirfinnst í sauðfé, minkum og geitum. Hún smitast með próteini.
Fjárglöggir menn sem þekkja hjörðina sína vel taka fyrst eftir breytingum á hegðun dýranna. Málrómurinn "breytist", kvörtunarhljóð heyrist í jarminu. Styggar og hnarreistar kindur geta orðið sljóar, spakar kindur verða styggar og margar verða órólegar eða óttaslegnar. Þeim finnst vont að láta þrengja að sér og kippa sér jafnvel frá garðanum og standa dágóða stund úti á miðju gólfi, eins og þær séu að hvíla sig eftir sjokk. Annað af fyrstu einkennunum geta líkaerið kindur sperra dindilinn þegar þær eru snertar, sumar snarast á hliðina ef tekið er í horn og aðrar geta dottið við snögg hljóð eða hreyfingar. Sumar riðukindur virðast sjá illa, labba á og bera framfæturnar hátt eins og maður með blindrastaf. Riðukind bregst óeðlilega við venjulegu fjárstússi, þær berjast um eins og brjálaðar ef þeim er haldið auk þess sem hárfínan titring er hægt að greina í vöðvunum.
Átlyst riðukinda er mikil, það er eins og þær éti og drekki meira en „venjulega“ en samt leggja þær af og veslast upp. Þetta kemur til vegna þess að veikin leggst á meltingarveginn.
Smitandi prótein getur leynst á mörgum stöðum, sérstaklega í dýrahræjum. Einnig getur munnvatn, hildir, augnvessi og blóð borið smitið með sér. Þekkt er eitt tilfelli þar sem burðarhjálp manns bar smit milli tveggja kinda. Hann bar því smitefnið með sér í næstu kind og er talið að hún hafi smitast í gegnum fæðingarveginn.
Ekki er auðvelt að losna við smit úr jarðvegi og fjárhúsum. Hræ þarf að grafa á viðurkenndum stað og fjárhús og réttir þarf að sótthreinsa áður en nýtt fé er tekið á bæinn, en á Íslandi eru þær reglur að öllu fé af bænum þarf að farga, ef kind greinist með riðu.
Fyrstu heimildir um riðu í heiminum eru frá árinu 1732 þegar fannst riða á Bretlandseyjum en hún var einnig þekkt í nokkrum löndum Evrópu. Þá þegar hafði fólk áttað sig á því að veikin væri ólæknandi, ef marka má grein sem birtist í þýsku riti árið 1759.
Scrapie | Scrapie | Ŝaftremo | Scrapie | Tremblante du mouton | Scrapie | Scrapie | スクレイピー | Scrapie | Scrapie