article

Reikistjarna (eða pláneta) er í almennu tali hugtak notað um stóran kúlulaga hlut á sporbaug um stjörnu, sem er ekki stjarna sjálfur. Hugtakið hefur þó enga nákvæma vísindalega skilgreiningu og eru deilur um hvernig það skuli skilgreint.

Alþjóðasamband stjarnfræðinga hefur nú á skrá níu reikistjörnur í sólkerfinu, valið er byggt á sögulegu ástæðum. Þar sem hugtakið reikistjarna hefur enga vísindalega skilgreiningu hefur fjöldi reikistjarna í sólkerfinu orðið deilumál. Sumir telja þær átta og að Plútó skyldi taka af skrá, á meðan aðrir vilja fimmtán eða fleiri á skrá (fer eftir skilgreiningu sem notuð er).

Nafnsifjar orðsins „reikistjarna“


Elsta dæmið sem nú er í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans um orðið 'reikistjarna' er úr Almennri landaskipunarfræði I-II eftir Gunnlaug Oddsson og fleiri frá 1821-1827 (bls. 66-67). Þar og í öðrum dæmum frá 19. öld er orðið haft í sömu merkingu og hér er lýst, þannig að það hefur líklega aldrei verið notað í merkingunni 'föruhnöttur'.*
Orðið reikistjarna er stundum ekki notað sem algjört samheiti plánetu (e. planet):
Í vönduðum enskum orðabókum er gerður greinarmunur á tveimur aðalmerkingum í orðinu 'planet' (Stein, 1975). Annars vegar merkir það sama og 'reikistjarna' eins og merkingu þess orðs er lýst hér á undan, en hins vegar getur það þýtt ´lýsandi hnöttur sem sést með berum augum og hreyfist miðað við fastastjörnur'. Í síðari merkingunni hefur orðið stundum verið þýtt sem 'föruhnöttur', en þessir hnettir eru sjö: tunglið, sólin, Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter og Satúrnus (Sören Sörenson 1986; Þorsteinn Vilhjálmsson 1986-7).*
Í dag er orðið „planet“ í ensku venjulega ekki notað um sólstjörnur eða hnetti sem hafa ekki sporbaug um sólstjörnu. Þ.a.l. myndi enginn telja tunglið eða sólina til plánetu í dag.

Nafnsifjar orðsins „pláneta“


Orðið pláneta er ættað af gríska orðinu πλανήτης (umritað: planētēs) sem þýðir is:flakkari.

Tengt efni


Heimildir


Reikistjörnur

Planeet | Planet | كوكب | Planeta | Планета | গ্রহ | Planete | Planeta | Planeta | Planet | Planet | Πλανήτης | Planet | Planedo | Planeta | Planeet | Planeta | سیاره | Planeetta | Planète | Planet | Planeta | כוכב לכת | Planet | Bolygó | Planeta | Planet | Planeto | Pianeta | 惑星 | ಗ್ರಹ | 행성 | Gerstêrk | Planet | Planeta | Planéit | Planeta | Planēta | Планета | Planet | Pjaneta | Chianeta | Planet | Planeet | Planet | Planet | Plianète | Planeta | Planeta | Planeta | Planetă | Планета | Pianeta | Planeta | Planet | Planéta | Planet | Planeti | Планета | Planet | கோள் | ดาวเคราะห์ | Planeta | Planet | Gezegen | سەييارە | Планета | Hành tinh | 行星 | He̍k-chheⁿ | 行星

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Reikistjarna".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld