article

Reiðtygi er þau áhöld sem notuð eru til útreiða t.d. til að halda knapanum á hestinum og einnig til að stjórna honum. Helstu reiðtygi eru hnakkur, beisli og múlar af ýmsu tagi.

Orðalisti


Beisli kallast einu orði höfuðleður, mél og taumur. Beislið er notað til að gefa hestinum ábendingar um hvað hann eigi að gera, s.s. stöðva, hægja á sér eða beygja. Einnig er það notað til að teyma hross, hvort sem knapinn er á baki eða á jörðu niðri.

Hnakkur er lagður á hestinn og á að hjálpa knapanum við að halda jafnvægi sínu á hestinum. Hnakkar eru ólíkir af lögun eftir því hvers konar útreiðar eru stundaðar. Notaðir eru hnakkar með djúpt sæti og góðan stuðning í fimireið, flatari og þynnri hnakkar í hindrunarstökki. Til reiðar á íslenska hestinum kjósa flestir örlítið flatan, en mjúkan hnakk sem leyfir knapanum að færa þyngd sína fram og aftur eftir gangtegundum. Hnakkurinn er festur á hestinn með gjörð, auk þess sem sumir velja að nota reiða, svo hnakkurinn renni ekki fram, eða brjóstreim, til að hnakkurinn rennir ekki aftur.

Múll, hvort sem það er reiðmúll eða stallmúll, er hlutur sem fer á höfuð hestsins og er notað til að hafa stjórn á honum. Stallmúllinn dregur nafn sitt af því að hross eru stundum bundin við stall á honu. Reiðmúlar eru margskonar og hafa ólík notagildi. Enskur múll er múll sem liggur þvert yfir nefbeinið, og leggst undir kinnbeinið. Hann getur haft skáreim sem kemur framfyrir mélhringina. Þýskur múll, Hannover-múl eða Rosemarie-múll, kom til Íslands fyrir tilstilli Rosemarie Þorleifsdóttur á 9. áratug seinustu aldar en hafði áður mikið verið notaður í Þýskalandi. Þýski múllinn er beinn, kemur yfir nefbein hestsins nokkuð neðarlega, en þó ekki svo neðarlega að hann loki öndunarveg hestsins. Mexíkóskur krossmúll er nokkuð líkur enskum múl með skáreim, nema nefreimin nær svolítið neðar.

Reiðtygi

Geschirr (Zugtier) | Horse tack | Finimenti | 馬具 | Rząd koński | Accesorii de călărie

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Reiðtygi".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld