Róm er höfuðborg Ítalíu og höfuðstaður héraðsins Lazio. Borgin stendur við Tíberfljót og reis upphaflega á sjö hæðum á vestri bakka fljótsins gegnt Tíbereyju; Palatínhæð, Aventínhæð, Kapítólhæð, Kvirinalhæð, Viminalhæð, Eskvinalhæð, Janikúlumhæð. Hún umlykur borgríkið Vatíkanið þar sem höfuðstöðvar kaþólsku kirkjunnar eru og aðsetur páfans, æðsta stjórnanda hennar. Þar var til forna höfuðborg rómverska heimsveldisins, og þar með menningarleg höfuðborg Miðjarðarhafssvæðisins. Róm er stundum kölluð „borgin eilífa“.
Í dag búa í Róm rúmar tvær og hálf milljónir manna. Borgarstjóri (frá 2001) er Walter Veltroni. Öll stjórnsýsla ítalska ríkisins, utan héraðsþing sjálfstjórnarhéraðanna fimm er í borginni. Höll forseta lýðveldisins er í Kvirinalhöll, sem áður var bústaður páfa. Að auki hýsir borgin ýmsar mikilvægar alþjóðastofnanir, eins og Alþjóða matvælastofnunina (FAO).
Undir stjórn Mússólínís var ráðist í ýmsar róttækar og mjög umdeildar breytingar á borginni, gömul hverfi rifin til að skapa pláss fyrir breiðgötur og torg sem hæfðu nútíma höfuðborg, en borgin hafði vaxið mjög hratt eftir að hún var gerð að höfuðborg.
Í stríðinu varð borgin fyrir miklum loftárásum, en var þó ekki eyðilögð. Hún féll í hendur bandamanna 6. júní 1944 eftir stutt tímabil þýskrar hersetu (stjórn fasista féll 1943).
Rom | Roma | روما | Roma | Рым | Рим | Roma | Rim | Roma | Řím | Рим | Rhufain | Rom | Rom | Ρώμη | Rome | Romo | Roma | Rooma | Erroma | رم | Rooma | Rome | Rome | An Róimh | An Ròimh | Roma | 𐍂𐌿𐌼𐌰 | רומא | रोम | Rim | Róma | Roma | Roma | Roma | Roma | ローマ | რომი | 로마 | Rom | Roma | Roum | Roeme | Roma | Roma | Рим | रोम | Rom (nyahkekaburan) | Romma | Rom | Rome (stad) | Roma | Roma | Rome | Рим | Rzym | Roma | Roma | Roma | Roma | Рим | Roma | Roma | Rim | Rome | Rím | Rim | Roma | Рим | Rom | Mji wa Roma | โรม | Lungsod ng Roma | Roma | رىم | Рим | Roma | 罗马市 | Lô-má