Ráðherra er embættistitill einstaklings sem situr í ríkisstjórn lands.
Forseti Íslands skipar ráðherra og veitir þeim lausn, forseti ákveður tölu ráðherra og skiptir störfum með þeim. Ráðherrar skipa ríkisráð undir forsæti forseta Íslands. Sá ráðherra sem forseti hefur kvatt til forsætis á ráðherrafundum hvar nýmæli í lögum og mikilvæg stjórnmálaefni skulu rædd, nefnist forsætisráðherra og stýrir hann ráðherrafundum sem jafnan eru kalllaðir ríkisstjórnafundir. Vegna embættisins hafa ráðherrar rétt til setu á Alþingi með málfrelsi og geta ráðherrar borið fram mál á Alþingi þó þeir hafi ekki verið kjörnir til setu þar, því geta þeir sem ekki eru þingmenn sest í ráðherra stól. En atkvæðisrétt á alþingi hafa einungis kjörnir Alþingismenn. Ríkisstjóri Íslands Sveinn Björnsson skipaði ríkisstjórn sem nefnd var utanþingsstjórn árið 1942 vegna þess að ráðherrar þeirrar stjórnar voru ekki alþingismenn. Eins var Ólafur Ragnar Grímsson ekki alþingismaður meðan hann gengdi embætti fjármálaráðherra 1988-1991.
Raunar hefur sú hefð þróast á Íslandi að sá sem hefur umboð til myndunar ríkisstjórnar, leggur til við forseta hverjir skuli verða ráðherrar hvaða málaflokks, að fengnu samkomulagi þeirra sem þar eru tilnefndir. Eru þeir sem tilnefndir hafa verið jafnan skipaðir ráðherrar og sá sem náði samkomulagi um myndun ríkisstjórnar settur í forsæti. Verkaskipting ráðherra hefur miðast við lög um Stjórnarráð Íslands. Ráðherrar skulu njóta trausts Alþingis, Alþingi verður að "þola" ríkisstjórnina, ellegar fellur einstaka ráðherra eða ríkisstjórnin öll verði vantrausttillaga samþykkt á Alþingi.
Ministre (govern) | Ministr | Gesandt | Minister | Minister (government) | Ministro | Ministro | Ministeri | Ministre | שר | Miniszter | Menteri Departemen | Ministro | 大臣 | Ministras | Minita Karauna | Minister | Minister | Minister | Ministro | Minister | Minister | Statsråd | Міністр
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Ráðherra".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world