Prótín ([prótein, af gríska orðinu protas er merkir "mikilvægur") er lífrænt efnasamband með háan mólmassa, sem samanstendur af fjölda amínósýra, sem tengjast með peptíðtengjum. Prótín eru nauðsynleg fyrir vöxt og viðgang allra lifandi frumna og veira.
Mörg prótín eru ensím, ellegar undireiningar prótína, sem hvetja efnahvörf. Önnur prótín gegna hlutverki í byggingu eða virkni, þá eru sum prótín mótefni, önnur geyma og flytja mismunandi tengla.
Prótín í fæðu brotna upp við meltingu, sem hefst í maga. Þar eru prótínin leyst upp í prótasa og fjölpeptíð til að útvega lífverunni amínósýrur. Pepsinogen verður að ensíminu pepsin í tengslum við saltsýru. Pepsin er proteolytic ensímið sem meltir kollagen, helsta prótín bandvefs. Prótín er einn þeirra efnaflokka við hlið fjölsykra, fita og kjarnasýra, sem eru helstu efnasambönd lífs.
Kóðunarferli gena ákvarðar röð amínósýra nánast allra náttúrulega prótína. Oft er þeim prótínum sem myndast breytt, svo þau verði virk. Algengt er að prótín starfi saman til ná ákveðinni virkni.
Prótín eru byggð úr 20 mismunandi L-alfa-amínósýrum í genum. Genin rita RNA sem er breytt í mRNA sem er síðar þýtt í tRNA af ríbósómi. Myndun viðkomandi peptíðtengis milli amínósýra, sem mynda prótín er hvatt áfram af amínóacýl tRNA. Endar amínósýrukeðjunar eru kallaðir karboxýlendi annars vegar og aminoendi hinsvegar.
Prótín falla saman í einstakt þrívítt form. Prótín eru fjölliður, þar sem amínósýrur eru einingarnar. Prótín eru greind eftir byggingu þeirra í fjóra flokka.
Prótín veita líkamanum köfnunarefni og lífsnauðsynlegar amínósýrur.
Prótín eru viðkvæm fyrir umhverfi sínu.
Hægt er að þýða þessa klausu á þennan veg:
Rannsóknir á prótínum hafa staðið yfir sleitulaust frá upphafi 19. aldar, þegar vísindamenn urðu fyrst varir við þennan áður óþekkta flokk lífrænna efnasambanda.
Proteïen | بروتين | Белтък | Proteïna | Bílkovina | Protein | Protein | Protein | Proteino | Proteína | Valk | Proteiini | Protéine | Proteína | חלבון | Fehérje | Protein | Proteino | Proteine | 蛋白質 | 단백질 | Protein | Baltymas | Olbaltumviela | Протеин | Proteïne | Protein | Protein | Protina | Białko | Proteína | Белки | Protein | Protein | Bielkovina | Beljakovina | Протеин | Protéin | Protein | புரதம் | โปรตีน | Protein | Protein | 蛋白质 | Nn̄g-pe̍h-chit