article

Núllbaugur (eða Greenwich-núllbaugur) er sá lengdarbaugur með sem allir aðrir lengdarbaugar jarðarinnar eru miðaðir við, hann hefur lengdargráðuna 0 og liggur í gegnum Royal Greenwich Observatory í Greenwich á Englandi. Daglínan (sem er ekki bein eins og núllbaugurinn) er svo staðsett í námunda við 180. lengdargráðu.

Saga


Ólíkt breiddargráðu er enginn náttúruleg miðlína fyrir lengdargráður á borð við miðbaug, þannig að velja þurfti viðmiðunarpunkt. Breskir landfræðingar og vísindamenn völdu að nota Greenwich, en aðrir punktar voru valdir víða um jörðina, þar á meðal Ferro, Róm, Kaupmannahöfn, Jerúsalem, St. Pétursborg, Písa, París og Philadelphia. Ár1884 var að frumkvæði Chester A. Arthurs forseta Bandaríkjanna haldin Alþjóðleg núllbaugsráðstefna þar sem var meðal annars ákveðið var að öll lönd heims skyldu nota Greenwich sem núllbaug. San Domingo (nú Dóminíska lýðveldið) greidda atkvæði á móti ályktuninni og Frakkland og Brasílía sátu hjá. Frakkland tók ekki upp Greenwich-núllbaug fyrr en 1911.

Tímabelti | Greenwich | Landmælingar

Meridià de Greenwich | Základní poledník | Nullmeridian | Prime Meridian | Meridiano de Greenwich | Algmeridiaan | Méridien de Greenwich | Nulmeridiaan | Meridiano de Greenwich | קו גריניץ' | Meridiano di Greenwich | グリニッジ子午線 | Meridiaan van Greenwich | Południk zerowy | Meridiano de Greenwich | Kinh tuyến số 0

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Núllbaugur".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld