article

Mið-Evrópa er hluti Evrópu sem liggur á milli Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu. Hugtakið hefur verið skilgreint á ýmsan hátt í gegnum tíðina þar sem það er ekki skýrt landfræðilega afmarkað. Almennt telst þetta svæði telja löndin Pólland, Tékkland, Slóvakíu, Ungverjaland, Rúmeníu og Slóvakíu. Eftir fall Járntjaldsins hefur færst í vöxt að telja Alpalöndin, Þýskaland, Sviss og Austurríki, til Mið-Evrópu, fremur en Vestur-Evrópu. Stundum eru Balkanlöndin Króatía, Serbía, Svartfjallaland, Bosnía-Hersegóvína, Búlgaría, Albanía og Lýðveldið Makedónía talin til Mið-Evrópu en það er þó sjaldgæft.

Hugmyndin um Mið-Evrópu byggir einkum á sameiginlegri sögu svæðisins, í andstöðu við austrið: Tyrkjaveldi og Rússneska keisaradæmið. Allt til Fyrri heimsstyrjaldarinnar voru þessi lönd einnig í andstöðu við vestrið vegna íhaldssemi og andstöðu við frjálslyndishugmyndir í stjórnmálum. Fyrst eftir Seinni heimsstyrjöld náðu lýðræðishugmyndir yfirhöndinni í Þýskalandi og Austurríki, en á þeim sama tíma féll hugmyndin um Mið-Evrópu algerlega í skuggann af skiptingunni í Austur- og Vestur-Evrópu, eftir því hvort löndin voru á áhrifasvæði Sovétríkjanna eða ekki.

Stundum er sagt að Mið-Evrópa sé það sem Austur-Evrópubúar líti á sem Vestur-Evrópu, og Vestur-Evrópubúar líti á sem Austur-Evrópu.

Mið-Evrópa

أوروبا الوسطى | Централна Европа | Europa central | Střední Evropa | Centraleuropa | Mitteleuropa | Central Europe | Mez-Eŭropo | Europa Central | Keski-Eurooppa | Europe centrale | Europa central | Srednja Europa | Közép-Európa | 中央ヨーロッパ | ცენტრალური ევროპა | 중앙유럽 | Centraal-Europa | Sentral-Europa | Europa Środkowa | Europa central | Europa Centrală | Центральная Европа | Europa cintrali | Srednja Evropa | Centraleuropa | 中欧

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Mið-Evrópa".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld