Dæmi: Ancilla semper laborat
Ambáttin vinnur alltaf
„Laborat“ er þá sögn í 3.p et. og þýðir að vinna eða orðrétt „hann/hún vinnur“.
Nefnifallið í latínunni virkar nákvæmlega eins og nefnifallið í íslensku.
Dæmi: Stúlkan lærir
Puella discit
„Puella“ er þá orðið „stúlka“ í nefnifalli.
Ávarpsfall er sérstakt fall og er ekki til í íslensku. Nafnið skýrir sig sjálft og er ávarpsfallið notað þegar er verið að ávarpa einhvern
Dæmi: Þegiðu, stúlka!
Tace, puella!
„Puella“ er þá orðið „stúlka“ í ávarpsfalli.
Þolfallið í latínu er alveg eins og þolfall í íslensku. Margar forsetningar í latínu stýra þolfalli.
Dæmi: Stúlkan elskar sjómanninn
Puella nautam amat
„Nautam“ er þá orðið „sjómaður“ í þolfalli.
Eignarfallið í latínu er alveg eins og eignarfallið í íslensku. Eini munurinn er sá að í beygingu sagna er eignarfalls-beygingin sögð á undan þágufalls-beygingunni.
Dæmi: Dóttir skáldsins er falleg
Puella poëtae pulchra est
„Poëtae“ er þá orðið „skáld“ í eignarfalli.
Þágufall í latínu er alveg eins og þágufallið í íslensku.
Dæmi: Stúlkan gefur sjómanninum rýting
Puella nautae sicam donat
„Nautae“ er þá orðið „sjómaður“ í þágufalli.
Ablativus eða sviptifall er sérstakt fall sem að er ekki til í íslensku. Nokkrar forsetningar stýra ablativus, forsetningar sem að myndu stýra þágufalli í íslensku. Ablativus getur birst í ýmsum myndum en hér birtast bara þrjár myndir.
Þessi gerð af ablativus táknar tækið sem eitthvað er gert með.
Dæmi: Sjómaðurinn særir skáldið með sverði
Nauta poëta gladio vulnerat
Þarna sést að latínan hefur sleppt orðinu „með“ og notað ablativus til að fylla það upp og að orðið „gladio“ er orðið „sverð“ í ablativus fallinu.
Þessi ablativus táknar hvenær eitthvað er gert.
Dæmi: Ég lifi á slæmum tímum
Malis temporibus vivo
Þarna hefur orðunum „á“ og „tímum“ verið sleppt og í staðinn er orðið „temporibus“ sem þýðir „tímarnir“ og er í abl. flt.
Þessi ablativus táknar háttinn, hvernig eitthvað er gert.
Dæmi: Forfeður okkar ræktuði akrana af kostgæfni
Maiores nostri agros industria colebant
Þarna hefur orðunum „af kostgæfni“ verið skipt út fyrir orðið „industria“ sem að þýðir „kostgæfni“ og er í abl. et. á latínu.
Grammatik des Lateinischen | Latin grammar | Gramática latina | Gramatika latinskog jezika | Grammatica latina | ラテン語の文法 | Grammatica Latina | Latijnse grammatica | Latinsk grammatik | Ngữ pháp Latinh | 拉丁语语法
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Latnesk málfræði".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world