Legal division of the ocean Icelandic.png Landhelgi er er það hafsvæði undan strönd ríkis þar sem ríkið hefur fullveldisyfirráð líkt og á landi. Friðsamlegar skipaferðir eru þó leyfilegar í landhelginni án sérstaks leyfis yfirvalda þó að þau geti sett fyrirmæli um ákveðnar siglingarleiðir. Það á við jafnt um kaupskip sem og herskip þó að erlend herskip verði að tilkynna yfirvöldum strandríkisins um förina áður en það kemur inn í landhelgina. Um kjarnorkuknúin skip og önnur skip sem geta valdið hættu á umhverfisspjöllum gilda sérstakar reglur, þau mega ekki fara inn í landhelgi ríkis nema með sérstöku leyfi þess.
Þessar reglur eru settar fram í Hafréttarsáttmála S.þ. og þar er ríkjum heimilað að taka sér allt að 12 sjómílna landhelgi út frá svonefndri grunnlínu. Þegar minna en 24 sjómílur eru á milli ríkja er almenna reglan að miðlínan á milli þeirra marki skilin en sterk rök þarf til að víkja frá þeirri reglu.
Territorialfarvand | Hoheitsgewässer | Territorial waters | Mar territorial | Mer territoriale | מים טריטוריאליים | Territoriale wateren | Территориальные воды | Territorialvatten | Lãnh hải | 领海
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Landhelgi".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world