Lítri er lagarmálseining. Einn lítri jafngildir einum rúmdesimetra, 1l = 1dm³. Mælieiningin lítri er notuð fyrst og fremst til mælinga á vökvamagni, sem ekki er of mikið, en sé um mikið magn að ræða eru notaðar stærri rúmmálseiningar, eins og rúmmetrar .
Afleiddar einingar lítra eru með smækkunar- og stækkunarforskeytum þessar: millilítri, sentilítri, desilítri, (lítri), dekalítri, hektólítri, kílólítri. Í hverju skrefi er tíföld stækkun. Þannig eru 1000 millilítrar í einum lítra og 10000 sentilítrar í einum hektólítra, svo að dæmi séu tekin. Lítið vökvamagn eins og til dæmis fljótandi lyf er að jafnaði mælt í millilítrum. Áfengisskammtar eru mældir í sentilítrum (1 einfaldur = 3 sentilítrar). Við matargerð og bakstur er iðulega miðað við desilítra. Menn kaupa mjólk og bensín í lítratali og heitt vatn frá hitaveitu í lítrum á mínútu. Dekalítraeiningin sést nánast aldrei notuð og hektólítrar sjaldan. Kílólítra er heldur aldrei talað um, vegna þess að 1kl jafngildir 1 rúmmmetra (1kl = 1m³) og er þá frekar talað um rúmmetra í stað kílólítra.
Lítri tengist metrakerfinu samkvæmt skilgreiningu, en er ekki SI eining. Margar Evrópuþjóðir nota þetta lagarmál, nema helst Bretar. Þeir ásamt Bandaríkjamönnum nota lagarmálseiningar á borð við fluid ounce, pint, quarter, gallon osfrv., en munur er á þessum einingum á milli landa og eru bresku einingarnar stærri en þær bandarísku. Mælieiningar
Llitru | Литър | Litr | Litre | Litr | Liter | Λίτρο | Litre | Litro | Litro | Litro | لیتر | Litra | Litre | Litro | Liter | Liter | Litro | リットル | 리터 | Liter | Litras | Litrs | Liter | Liter | Liter | Litr | Litro | Литр | Litre | Litar | Litre | Liter | Liter | Литар | Léter | Liter | ลิตร | Litre | Літр (одиниця виміру) | Lít | 升