CricketSCG1.jpg Krikket er hópleikur sem leikinn er af tveimur liðum í einu sem samanstanda af ellefu leikmönnum hvort. Leikurinn kemur upphaflega frá Englandi og er einkum vinsæll í löndum Breska samveldisins. Krikket er vinsælasta íþróttin í mörgum löndum Suður-Asíu, þ.á m. Indlandi, Pakistan, Bangladesh og Sri Lanka.
Hver krikketleikur getur tekið frá sex tímum til 5 eða 6 daga, með viðeigandi tepásum. Leikurinn byggir á 42 reglum sem Marylebone Krikketklúbburinn hefur þróað ásamt helstu krikketþjóðunum. Lið geta samþykkt að breyta reglunum í ákveðnum leikjum eða við ákveðnar aðstæður. Slíkar breytingar felast einkum í leikuppbyggingu og staðsetningu á leikvanginum.
Hverjum leik er skipt í lotur. Meðan á lotu stendur slær annað liðið á meðan hitt kastar boltanum og hleypur á milli hafna.
Það lið sem kastar reynir að lágmarka stig andstæðingsins og á sama tíma að losna við leikmenn þess. Sérhver leikmaður slær þangað til hann er úr leik. Leikmaður sem er úr leik má ekki taka þátt í yfirstandandi lotu aftur. Það lið sem slær hefur alltaf tvo leikmenn inni á vellinum. Þegar 10 af 11 leikmönnum liðsins eru þannig úr leik má liðið ekki gera og lota þess því liðin. Fyrirliði liðsins getur einnig bundið enda á lotu liðsins.
Nokkuð hefur verið um að fólk af erlendu bergi brotið hafi reynt að stunda krikket hér á landi. Má þar nefna starfsfólk breska sendiráðsins og í seinni tíð nýbúa af asískum uppruna, s.s. Indverja, Pakistana og fólk frá Sri Lanka. Innfæddir Íslendingar hafa sömuleiðis reynt sig við þessa erfiðu íþrótt. Í kringum árið 2000 voru stofnuð krikketfélög bæði í Reykjavík og í Stykkishólmi. Kepptu þau sín á milli um óopinbera Íslandsmeistaratign í greininni.
Á vegum íslensku krikketfélaganna hafa komið hingað til lands nokkur bresk keppnislið í krikket og hafa heimsóknir þeirra stundum hlotið nokkra umfjöllun erlendra fjölmiðla. Þannig sagði íþróttastöðin Eurosport frá komu hóps Breta til Íslands sem léku krikket við heimamenn að næturlagi í íslensku miðnætursólinni og á jökli, en hvort tveggja var talið einstakt í krikketsögunni. Evrópska krikketsambandið hefur sömuleiðis stutt með ráðum og dáð við bakið á íslenskum krikketiðkendum, meðal annars með veglegum gjöfum á keppnisbúnaði og með því að senda sérfróðan krikketkennara til að leiðbeina börnum í Stykkishólmi.
Veðrátta er þó tvímælalaust það sem háir krikketiðkun á Íslandi hvað helst, því krikket verður ekki með góðu móti spilað í vindi eða votviðri.
Krieket | كريكيت | Críquet | Крикет | Kricket | Criquet | Kriket | Criced | Kricket | Cricket | Κρίκετ | Cricket | Kriketo | Críquet | Kriket | Kriketti | Cricket | Krikket | Cricéad | Criogaid | Críquet | ક્રિકેટ | קריקט | क्रिकेट | Kriket | Krikett | Cricket | Kriket | Cricket | クリケット | ಕ್ರಿಕೆಟ್ | 크리켓 | Criccetius lusus | Cricket | Kriketas | क्रिकेट | Cricket | Cricket | Cricket | Cricket | Cricket | Krykiet | Críquete | Crichet | Крикет | क्रिकेट | Cricket | Kriket | Cricket | Kriket | Cricket | கிரிக்கெட் | คริกเกต | Kriket | 板球