article Related Topics:
Kelvin_Grove
 

Umbreytingarformúlur
Úr í Formúla
Kelvin Fahrenheit °F = K · 1,8 – 459,67
Fahrenheit kelvin K = (°F + 459,67) / 1,8
Kelvin celsíus °C = K – 273,15
Celsíus Kelvins K = °C + 273,15
1 K = 1 °C og 1 K = 1,8 °F
Kelvin (tákn: K) er SI hitamælieining og ein af sjö grunneiningum kerfisins, hún er skilgreind útfrá núllpunkti sínum sem samsvarar alkuli og einu kelvin sem er er 1/273,16 af þrípunkti vatns.

Saga


Einingin var kynnt til sögunnar ár1954 á 10. fundi Conférence Générale des Poids et Mesures (samþykkt 3, CR 79) hún er nefnd eftir breska eðlis- og verkfræðingnum William Thomson, 1st Baron Kelvin.

Celsíuskvarðinn er nú skilgreindur út frá kelvin, en 0 °C samsvara 273,15 kelvin, sem aftur er bræðslumark vatns við staðalaðstæður.

Ritháttur


Orðið kelvin sem SI eining er skrifað með litlum staf nema í byrjun setningar, táknK er þó ávallt hástafur og aldrei skáletrað, bil er á milli tölunnar og táknsins líkt og með aðrar SI einingar. Ekki er talað um „gráður á kelvin“ né heldur er gráðumerkið notað, þetta stafar af því að kelvin er, ólíkt Fahrenheit og Celsíus, mælieining en ekki kvarði. Þó var skrifað „gráður á Kelvin“ og „°K“ frá því einingin var upprunalega kynnt til sögunnar árið 1954 þar til árið 1967 þegar því var breytt á 13. fundi CGPM (samþykkt 3, CR 104).

SI grunneiningar | Hitakvarðar

Kelvin | Kelvin | كلفن | Келвин | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvino | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | יחידות מידה לטמפרטורה | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Kelvin | ケルビン | 켈빈 | Kelvinas | Kelvins (mērvienība) | Kelvin | Kelvin | केल्भिन | Kelvin (eenheid) | Kelvin | Kelvin | Kelwin | Kelvin | Кельвин | Kelvin | Kelvin | Kelvin | Келвин | Kelvin | เคลวิน | Kelvin (birim) | Кельвін | Kelvin | 热力学温标

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Kelvin".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld