article

Kampala er höfuðborg Úganda og samnefnt hérað. Íbúafjöldinn var 1.208.544 ár2002 og borgin er því stærsta borg landsins. Borgin stendur í 1.189 metra hæð yfir sjávarmáli. Kampala er höfuðstaður héraðsins og konungsríkisins Búganda.

Nálægt borginni eru alþjóðaflugvöllurinn í Entebbe og höfnin Port Bell á strönd Viktoríuvatns.

Borgin óx í kringum virki sem Frederick Lugard reisti árið 1890 fyrir Breska Austur-Afríkufélagið. Árið 1962 tók borgin við af Entebbe sem höfuðborg. Stór hluti borgarinnar eyðilagðist þegar Idi Amin var steypt af stóli 1979.

Borgir í Úganda

كمبالا | Кампала | Kampala | Kampala | Kampala | Kampala | Kampala | کامپالا | Kampala | Kampala | קמפלה | Kampala | Kampala | Kampala | カンパラ | 캄팔라 | Kampala | Kampala | कम्पाला | Kampala | Kampala | Kampala | Кампала | Kampala | Kampala | Kampala | 坎帕拉

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Kampala".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld