Hvítur dvergur er stjarnfræðilegt fyrirbrigði (m.ö.o. kulnuð sólstjarna) sem mótast vegna þyngdarhruns flestra sólstjarna. Þessar sólstjörnur skortir massann til þess að leysa úr læðingi nægan hita fyrir kjarnasamruna kolefnis. Eftir að stjörnurnar breytast í rauðan risa, á meðan vetnisbruna stendur, losa þær sig við ytri lög sín og mynda hringþokur. Eftir verður hreyfingarlaus þéttur kjarni sem samanstendur aðallega af kolefni og súrefni.
Þessi afgangs kjarni þrýtur orku og mun smám saman geisla frá sér rytju orkunnar og kólna. Við þyngdarhrun verður kjarninn afar þéttur og er þetta eitt þéttasta form efnis sem þekkist (109kg.m-3) að undanskildum nifteindastjörnum. Massinn jafngildir um helming massa Sólar og stærðin er rúmleg stærð jarðar. Verði kjarninn þyngri en sem samsvarar 1.4 sólmössum springur sem gerð Ia sprengistjarna. Stjörnuflokkur hvítra dverga er D.
Hvítir dvergar | Þróun sólstjarna
Бяло джудже | Nana blanca | Bílý trpaslík | Hvid dværg | Weißer Zwerg | White dwarf | Blanka nano | Enana blanca | Valge kääbustäht | Valkoinen kääpiö | Naine blanche | Anana branca | ננס לבן | Fehér törpe | Nana bianca | 白色矮星 | Pumilio alba | Baltoji nykštukė | Baltais punduris | Witte dwerg | Biały karzeł | Anã branca | Белый карлик | White dwarf | Biely trpaslík | Vit dvärg | Білий карлик | Sao lùn trắng | 白矮星
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Hvítur dvergur".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world