Hryggsúlan er einn af mikilvægustu hlutum beinagrindarinnar, hún heldur líkamanum uppi og ver mænuna.
Hryggsúla mannsins
Liðir hryggjarins, hryggjarliðirnir, eru 32-33, séu samvaxnir liðir spjaldbeins og rófubeins taldir með.
Ath: Undir vinstri myndinni hér að neðan stendur handskrifað: Séð að framan, en á að vera séð að aftan.
Hryggjarliðirnir
| Latneskt heiti beins/beina | Íslenskt heiti beins/beina | Auðkenni beins/beina | Stutt lýsing | Hlutverk |
| Atlas | Banakringla | C1 | | Banakringlan er efsti hálsliðurinn, myndar lið með hnakkahnúum og gefur svigrúm tl að geta kinkað kolli |
| Axis | Standliður | C2 | Standliður er renniflötur fyrir snúning banakringlu og höfuðkúpu, hann gerir mönnum kleift að hrista höfuðið | Standliðurinn er næst-efsti hálsliðurinn |
| Os coccygeae | Rófubein | Ekkert | Í börnum eru þetta 3-5 aðskildir rófuliðir, hjá fullvöxnu fólki hafa þeir runnið saman | |
| Os sacrales | Spjaldbein | Ekkert | Fimm aðskildir hryggjarliðir hjá börnum, þeir renna saman í fyllingu lengdarvaxtar | Ath: Tilheyrir mjaðmagrindinni |
| V. cervicales inferior | Neðri hálsliðir | C3-C7 | | |
| V. thoracicae | Brjóstliðir | T1-T12 | Þeir hafa liðfleti fyrir rifbeinin | |
| V. lumbales | Lendaliðir | L1-L5 | Stórir og þunglamalegir hryggjarliðir | Styðja við líkamsþungann, sveigjanleiki í búknum er sérlega háður lendaliðum |
|
Lol-bein-hryggsula-1.png
Hryggjarliðirnir og auðkenni þeirra. Númerin á auðkennunum eru talin að ofan og niður.
|
Beinagrind
Wirbel (Anatomie) | Vertebra | Vértebra | Vertebra | 脊椎