article

MRI_head_side.jpg

Heilaskönnun er tækni til að taka myndir af lifandi heila, annað hvort formgerð hans eða virkni. Heilaskönnun er til að mynda notuð í læknisfræði, taugavísindum og sálfræði.

Á seinni hluta síðusta aldar komu fram tæki sem gerðu okkur kleyft að skoða í þaula heila mannsins og skoða virkni hans. Tæki til heilaskönnunar (einnig þekkt sem heilaskimun) eru fleiri en flestir gera sér grein fyrir og notagildi þeirra mismunandi, en þessi byltingarkennda rannsóknaraðferð gerir læknum kleyft að staðsetja heilaskemmdir fyrir lát sjúklingsins auk þess að kortleggja líffæri heilans og fylgjast með virkni heilans við vinnslu á verkefnum sem sjúklingnum er sett fyrir, eðlilega var reynt að forðast óþægindi og óæskilegan skaða í garð sjúklinganna sem af notkun tækjanna gæti hlotist og eru tækin öll skaðlaus ef farið er eftir ákveðnum vinnureglum.

Eins og áður hefur komið fram eru til margar mismunandi gerðir tækja til heilaskimunar en frægast þeirra er ef til vill CAT-skanninn sem var fundinn upp árið 1971, en í stuttu virka tækin þannig að fjöldi tvívíðra mynda er raðað saman með hjálp tölvna til að búa til þrívíddar líkan sem hægt er að skoða frá öllum hliðum.

Mismunandi tækni til heilaskönnunar


Læknisfræði | Taugavísindi | Sálfræði

Neuroimaging | סריקת מוח | Neuroimaging

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Heilaskönnun".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld