article

Galíasi var stórt seglskip sem þróaðist út frá karavellunni og karkaranum á 16. öld. Þessi gerð var bæði hærri og lengri en karkari og með mörg þilför. Skipið var með háan og íburðarmikinn afturkastala en engan framkastala. Þess í stað kom trjóna undir bugspjótinu að framan. Galíasar voru þannig hraðskreiðari en karkarar og gátu borið langtum fleiri fallbyssur sem gerði þeim auðveldara að verjast sjóræningjum.

Galíasar voru yfirleitt þrí- eða fjórmastra, með fremstu möstrin rásigld en þríhyrnt latínusegl á messansiglunni, líkt og karkarinn. Þeir voru með algerlega beinan skut og stórt bugspjót sem bar jafnvel nokkur lítil rásegl. Galíasar voru með sléttbyrðing, kjöl og afturstýri. Tvö byssuþilför voru yfirleitt á galíasa, en því neðra þurfti að loka ef mikil alda var.

Galíasar voru yfirleitt smíðaðir sem kaupskip af kaupmönnum sem gerðu með sér félag um smíðina. Skipin hentuðu vel til langtíma úthafsferða, líkt og þá tíðkuðust til hafna í Austur- og Vestur-Indíum. Auðvelt var að búa þau til hernaðar og kjarninn í flotanum ósigrandi voru galíasar, en Bretar áttu þá fá þannig skip og treystu meira á minni fiskiskip og kaupskip (s.s. barkskip) sem búin voru fallbyssum. Skip sem tekin voru herfangi var yfirleitt breytt í herskip í eigu viðkomandi ríkis.

Galíasar voru í notkun fram á 18. öld þegar klipparinn og önnur fullbúin skip tóku við.

Frægir galíasar


Seglskútur

Galeon | Galeon | Galeone | Galleon | Galeón | Galeoon | Galion | Galeone | ガレオン船 | Galjoen | Galeon | Галеон | Galeon | Galeon | Галіон

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Galíasi".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld