Berlaymont.jpg.]] Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er ein af stofnunum Evrópusambandsins og telst fara með framkvæmdavald innan þess. Störf framkvæmdastjórnarinnar felast aðallega í því að gera tillögur um og setja nýja löggjöf, einnig að sjá til þess að markmiðum stofnsamninganna sé framfylgt. Framkvæmdastjórnin gegnir einnig því hlutverki á stundum að vera í fyrirsvari fyrir Evrópusambandið á alþjóðavettvangi, t.d. í samskiptum við önnur ríki og alþjóðastofnanir.
Í framkvæmdastjórninni sitja 25 fulltrúar, einn frá hverju aðildarríki sambandsins. Hver fulltrúi tekur að sér umsjón með ákveðnu sviði í starfsemi sambandsins (líkt og ráðherrar í ríkisstjórn). Forseti framkvæmdastjórnarinnar er valinn af Evrópska ráðinu en Evrópuþingið verður að staðfesta það val. Síðan tilnefna aðildarríkin hvert einn fulltrúa í stjórnina í samráði við forsetann. Þegar stjórnin er fullskipuð og verkaskiptingin innan hennar er komin á hreint þá verður Evrópuþingið að samþykkja hana í heild sinni til að hún geti tekið til starfa. Kjörtímabil framkvæmdastjórnarinnar er 5 ár og henni verður ekki vikið frá nema 2/3 hlutar Evrópuþingsins samþykki tillögu þess efnis, einstökum stjórnarmönnum verður þó eingöngu vikið frá störfum samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins ef þeir hafa gerst sekir um alvarleg afglöp í starfi eða fullnægja ekki lengur skilyrðunum sem þeir ættu að gera.
Framkvæmdastjórnin á að vera óháð ríkisstjórnum aðildarríkjanna í störfum sínum og ekki beygja sig undir þrýsting frá þeim. Hún á að berjast fyrir hagsmunum sambandsins í heild en ekki einstakra aðildarríkja. Eins og fram kom fyrr er töluvert erfitt að víkja framkvæmdastjórninni frá og er það liður í því að tryggja sjálfstæði hennar.
Núverandi forseti framkvæmdastjórnarinnar (síðan í nóvember 2004) er José Manuel Durão Barroso frá Portúgal.
Европейска комисия | Comissió Europea | Evropská komise | Comisiwn Ewropeaidd | Europa-Kommissionen | Europäische Kommission | European Commission | Eŭropa Komisiono | Comisión Europea | Euroopa Komisjon | Euroopan komissio | Commission européenne | Comisión Europea | Európai Bizottság | Commissione europea | 欧州委員会 | ევროკომისია | Europäesch Commissioun | Europos Komisija | Eiropas Komisija | Европска Комисија | Europese Commissie | Europakommisjonen | Komisja Europejska | Comissão Europeia | Comisia Europeană | Европейский Союз#Еврокомиссия | Európska komisia | Evropska komisija | Европска комисија | Europeiska kommissionen
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world