Flygill er sú gerð píanóa, sem oftast er notuð á tónleikum, og er hönnuð þannig að rammi og strengir séu láréttir, fremur en lóðréttir eins og í stofupíanóum. Strengir flygla eru lengri en í öðrum píanóum og veldur þetta meiri tónstyrk, sem hentar vel fyrir stóra sali.
Vegna umfangs síns eru flyglar af fullri stærð ekki eins algengir í heimahúsum og hin uppréttu stofupíanó, en til eru styttri flyglar hannaðir með takmarkað pláss í huga.
Tveir af frægustu framleiðendum flygla eru Steinway and sons, Bösendorfer, Yamaha og Kawai.
Flygel | Flügel (Musikinstrument) | Grand piano | Vleugel (muziek) | Flygel | Fortepian | Flyygeli | Flygel