Föll eru fyrirbæri í sumum tungumálum sem notuð eru til þess að breyta eðli fallorða eftir kringumstæðum eða umræðuefni. Misjafnt er eftir tungumálum hvaða orðflokkar teljast til fallorða, en í íslensku teljast til þeirra nafnorð, lýsingarorð, fornöfn, töluorð og greinir.
Hér er listi yfir þau föll sem til eru í ýmsum tungumálum. Alls ekki öll tungumál hafa orð sem beygjast í föllum, raunar mjög fá, en þó er upptalningin hér að neðan hvergi tæmandi.
| Fall | Enskt heiti | Notkun | Dæmi | Dæmi um mál sem nota fallið |
|---|---|---|---|---|
| Abessive | skortur á e-u | án hússins | finnska | |
| Ablative (1) | algilt óbeint fall | varðandi húsið | latína, sanskrít, litháíska | |
| Ablative (2) | tilfærsla frá e-u | burt frá húsinu | finnska | |
| Absolutive | efni sagna í framsöguhætti eða hlutur sagna í boðhætti | húsið [so.bh. húsið | baskneska | |
| Þolfall | Accusative | bein tilvísiun í þolanda | um hús | finnska, þýska, esperanto, latína, rússneska, serbneska, litháíska |
| Adessive | staðsetning í grennd | hjá / á / við húsið | finnska, litháískar mállýskur | |
| Allative | færsla á eitthvað | ofan á húsið | finnska | |
| Comitative | í félagi við e-ð/e-n | ásamt húsinu | eistneska, finnska, ungverska | |
| Þágufall | Dative | sýnir móttakanda eða stefnu, óbeint fall | til hússins | þýska, latína, rússneska, serbneska, hindi, litháíska |
| Virðingarfall | Dedative (Respective) | með hliðsjón af e-u | með tilliti til hússins | quenya |
| Disjunctive | notað þegar að viðfangsefnið er endurtekið til aherslu eða vegna upptalningar | húsið og bíllin eru bæði hér | franska | |
| Elative | út úr e-u | úr húsinu | finnska, eistneska, ungverska | |
| Ergative | samskonar og nefnifall ef að viðfangsefnið framkvæmir e-ð í framsöguhætti | húsið * | baskneska, samóíska, téténska, inuktitut | |
| Skilyrðisfall | Essive | skilyrði | sem húsið | finnska, mið-egypska |
| Eignarfall | Genitive | sýnir tengsl eða eign | til hússins | finnska, þýska, latína, rússneska, serbneska, gríska, hollenska, litháíska |
| Illative | færsla inn í e-ð | inn í húsið | finnska, litháíska | |
| Inessive | inni í e-u | í húsinu | eistneska, finnska, ungverska | |
| Tækisfall | Instrumental / Instructive | notkun á e-u | með húsinu | rússneska, serbneska, finnska, sanskrít, litháíska |
| Staðarfall | Locative | staðsetning | á / við húsið | serbneska, klingónska, sanskrít, lettneska |
| Nefnifall | Nominative case | almennt fall | hér er hús | nánast öll tungumál sem beygjast í föllum |
| Oblique | almennt fall | varðandi húsið | hindi | |
| Partitive | notað vegna fjölda | * húsanna | finnska | |
| Eignartilvísunarfall | Possessive case | bein eign á e-u | í eigu hússins | quenya |
| Postpositional | þegar að forsetning kemur á eftir nafnorði | húsið í / á / við / með | hindi | |
| Forsetningarfall | Prepositional | þegar að forsetning kemur á undan nafnorði | í / hjá / með húsinu | rússneska |
| Prolative | færsla eftir fleti eða braut | meðfram / í gegnum húsið | eistneska, finnska | |
| Terminative case | endir tilfærslu eða tímabils | þar til að húsið * | eistneska | |
| Umbreytingarfall | Translative | breyting úr einu ástandi í annað | er að breytast í hús | finnska, ungverska |
| Ávarpsfall | Vocative | notað til ávarpa | Hús! | latína, gríska, serbneska, sanskrít, litháíska |
Deklination | Deklination (Grammatik) | Declension | Kazo | Caso | Déclinaison | Føll | Padež | Eset | 格 | Naamval | Przypadek | Caz | Падеж
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Fall (málfræði)".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world