Betasundrun er form geislavirkar sundrunar, sem sendir frá sér betaeind (annað hvort rafeind eða jáeind). Þegar um er að ræða rafeind, er sundrunin kölluð "beta mínus" (β−), en þegar um er að ræða jáeind, er hún kölluð "beta plús" (β+).
Í β+ sundrun, er róteind breytt í nifteind, jáeind og fiseind:
Ólíkt β− sundrun, getur β+ sundrun ekki gerst fyrir utan kjarna, því að massi nifteindar er meiri en massi róteindar. β+ sundrun getur því aðeins gerst í atómkjarna með háa bindiorku og fer sú orka beint í ferlið, sem breytir róteind í nifteind.
Ef róteindin og nifteindin eru hlutar atómkjarna, breyta þessi sundrunarferli einu frumefni yfir í annað. Til dæmis:
Í frægu bréfi, sem skrifað var af Wolfgang Pauli árið 1930, stakk hann upp á að betasundrun gæfi frá sér nýja rafhlutlausa eind, sem hann kallaði nifteind (enska: neutron), og að hún hefði hingað til einfaldlega ekki mælst. Árið 1931 endurskírði Enrico Fermi nifteindina og kallaði fiseind (enska: neutrino). Svo árið 1934 gaf hann út mjög árangursríkt líkan yfir betasundrun, þar sem fiseindir voru skapaðar.
Í sumum kjörnum er orkulega komið í veg fyrir betasundrun, og í sumum af þessum tilfellum getur kjarninn orðið fyrir tvívirkri betasundrun.
Betasundrun getur talist sem truflun eins og lýst er í skammtafræði, og fylgir því hinni Gullnu reglu Fermis.
Emissió beta | Betahenfald | Betazerfall | Beta decay | Desintegración Beta | Beetahajoaminen | Radioactivité β | קרינת בתא | Béta-bomlás | Decadimento beta | ベータ崩壊 | 베타 붕괴 | Beta skilimas | Betaverval | Rozpad beta | Razpad beta | Betasönderfall | Β衰变
This article is licensed under the GNU Free Documentation License.
It uses material from the
"Betasundrun".
Home Page • arts • business • computers • games • health • hospitals • home • kids & teens • news • physicians • recreation• reference • regional • science • shopping • society • sports • world