article

. Bandý er innanhúss hóp- og boltaíþrótt spiluð með plastkylfum þar sem markmiðið er að koma lítilli plastkúlu (kölluð bandýkúla) í mark andstæðingsins. Í bandý eru sex menn í liði, þar af einn markmaður og hafa þeir allir fyrir utan markmanninn kylfu til að stjórna og skjóta kúlunni, en markmaðurinn ver markið með höndum og fótum. Leikmenn mega ekki viljandi nota hendur eða höfuð til að stjórna kúlunni, en leyfilegt er að snerta hana einu sinni í einu með fótunum (oftast til að stoppa hana), en ekki má skora mörk með fótunum eða gefa kúluna með þeim.

Völlur


Algengast er að bandývöllur sé 40 metrarlengd og 20 metrar að breidd en einnig er leyfilegt að spila á 36 · 18 m velli og 44 · 22 m velli. Völlurinn skal afmarkaður af 50 cm háu spjaldi með rúnnuðum hornum.

Leiktími


Leiktími er 3 · 20 mínútur með 10 mínútna hléum, leiktími er stöðvaður ef dómari stöðvar leikinn og heldur áfram þegar leikurinn byrjar aftur.

Leikmenn


Hvert lið má hafa mest 20 leikmenn þar af 6 á vellinum í einu, skiptingar eru leyfðar hvenær sem er í leiknum og hefur hvert lið ótakmarkaðar skiptingar.

Búningar

Leikmenn skulu vera í samsvarandi búningum sem samanstanda af treyju, stuttbuxum og hnésokkum, einnig skulu þeir vera í innanhússíþróttaskóm,

Heimild


Tenglar


Hópíþróttir | Boltaíþróttir | Innanhússíþróttir | Hokkí

Unihockey | Florbal | Floorball | Unihockey | Floorball | Floorball | Saalihoki | Salibandy | Unihockey | Floorball | Florbols | Unihockey | Innebandy | Innebandy

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Bandý".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld