article

Alþjóðlega staðlastofnunin (ISO) er alþjóðlegt fulltrúaráð sem samsett er af fulltrúum ríkisstaðlastofnana og sér um að setja fram alþjóðlega staðla fyrir viðskipti og iðnað. Eru þessir staðlar þekktir sem ISO staðlar. Hún var stofnsett 23. febrúar 1947.

Stofnunin er yfirleitt kölluð einfaldlega ISO (borið fram sem „ísó“). Það er algengur misskilningur að ISO standi fyrir enska heitið International Standards Organization, eða svipað. ISO er ekki skammstöfun, heldur kemur það frá gríska orðinu isos, sem þýðir „jafngildur“. Vegna þess að eigið nafn stofnuninnar er mismunandi í hverju tungumáli ákváðu stofnendur hennar að nota „ISO“ sem alhliða stutt heiti á henni.

Þó að ISO flokki sjálfa sig sem óopinbera stofnun, er hún valdmeiri en flestar aðrar óopinberar stofnanir vegna þess að staðlar sem hún setur verða oft að lögum í gegnum milliríkjasamninga eða ríkisstaðla, og hagar hún sér yfirleitt meira eins og samtök með sterk tengsl við ríkistjórnir. Meðlimir ISO teljast nokkur af stærri hlutafélögum heims og að minnsta kosti ein staðalnefnd frá hverju landi.

ISO starfar náið með Alþjóðlega raftækniráðinu (IEC) sem er ábyrgt fyrir stöðlun raftækja.

ISO

إيزو | Международна организация по стандартизация | ISO | Organització Internacional per a l'Estandardització | Mezinárodní organizace pro normalizaci | International Organization for Standardization | International Organization for Standardization | International Organization for Standardization | Internacia Organizo por Normigado | Organización Internacional para la Estandarización | Rahvusvaheline Standardiorganisatsioon | ISO | Organisation internationale de normalisation | ארגון התקינה הבינלאומי | ISO | Organizzazione Internazionale per le Standardizzazioni | 国際標準化機構 | 국제 표준화 기구 | International Organization for Standardization | International Organization for Standardization | ISO | ISO | International Organization for Standardization | International Organization for Standardization | Международная организация по стандартизации | Medzinárodná organizácia pre normalizáciu | Mednarodna organizacija za standardizacijo | ISO | அனைத்துலக நியமப்படுத்தல் நிறுவனம் | ไอเอสโอ | ISO | Xalıqara Standartlaw Oyışması | Tổ chức tiêu chuẩn hoá quốc tế | 國際標準化組織 | ISO

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Alþjóðlega staðlastofnunin".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld