article

WTOmap 2005.png Alþjóðaviðskiptastofnunin (enska: World Trade Organization; skammstafað WTO) er alþjóðastofnun sem hefur umsjón með mörgum samningum sem að skilgreina þær reglur sem gilda um viðskipti aðildarríkjanna. Stofnunin var stofnuð ár1995 og leysti af hólmi GATT-samningana og líkt og sá samningur hefur stofnunin það markmið að reyna að draga úr hömlum á milliríkjaviðskiptum.

Höfuðstöðvar WTO eru í Genf í Sviss. Aðalframkvæmdastjóri er Pascal Lamy. Aðildarríkin eru 148, öll verða þau að fylgja grundvallarreglunni um bestukjaraviðskipti en í því felst að samskonar vörur frá mismunandi WTO-ríkjum eiga að fá sömu meðferð í innflutningslandinu (á þessu eru þó undantekningar).

WTO er mikið gagnrýnd af andstæðingum hnattvæðingar.

Uppruni


Samið var um stofnun WTO á fundi í Marrakesh í Marokkó þann 15. apríl 1994 og tók sá samningur gildi 1. janúar 1995. Stofnunin skyldi leysa af hólmi GATT-samningana (General Agreement on Tariffs and Trade) sem eru nokkrir viðskiptasamningar sem farið var að gera uppúr síðari heimsstyrjöld til þess að stuðla að aukinni fríverslun. WTO tók þannig uppá sína arma þær reglur og venjur sem höfðu skapast í GATT-kerfinu og fékk það hlutverk að sjá um framkvæmd þeirra og þróa áfram. Hafa ber í huga að GATT var aldrei stofnun og var reyndar aldrei ætlað að vera annað en bráðabirgðalausn þangað til varanlegri stofnun yrði komið á fót. Upphaflega stóð til að koma slíkri stofnun á laggirnar á fimmta áratug 20. aldar og hefði hún hlotið nafnið International Trade Organization, stofnskrá hennar var samþykkt á fundi í Havana á Kúbu í mars 1948 en Öldungadeild Bandaríkjaþings neitaði svo að fullgilda hana, án Bandaríkjanna hefði lítið gagn verið af svona stofnun og því var alveg fallið frá hugmyndinni.

Alþjóðastofnanir | Alþjóðaviðskipti

Световна търговска организация | Organització Mundial de Comerç | World Trade Organization | WTO | Welthandelsorganisation | World Trade Organization | Monda Organizaĵo pri Komerco | Organización Mundial del Comercio | Maailman kauppajärjestö | Organisation mondiale du commerce | Organización Mundial do Comercio | ארגון הסחר העולמי | WTO | Organisasi Perdagangan Dunia | Organizzazione Mondiale del Commercio | 世界貿易機関 | 세계무역기구 | Pasaulio prekybos organizacija | Светска Трговска Организација | Wereldhandelsorganisatie | Verdshandelsorganisasjonen | Verdens handelsorganisasjon | Światowa Organizacja Handlu | Organização Mundial do Comércio | Organizaţia Mondială a Comerţului | Всемирная торговая организация | Svetovna trgovinska organizacija | Världshandelsorganisationen | Dünya Ticaret Örgütü | Світова організація торгівлі | Tổ chức Thương mại Thế giới | 世界贸易组织 | Sè-kài Bō·-e̍k Cho·-chit

 

This article is licensed under the GNU Free Documentation License. It uses material from the "Alþjóðaviðskiptastofnunin".

Home Pageartsbusinesscomputersgameshealthhospitalshomekids & teensnewsphysiciansrecreationreferenceregionalscienceshoppingsocietysportsworld