Íslenski hesturinn er hestakyn sem er talið vera komið af norska lynghestinum og mongólska prezwalski hestinum. Víkingar fluttu með sér skandinavíska hesta þegar þeir settust að á Íslandi fyrir meira en 1000 árum síðan.
Þar sem innflutningur hesta til landsins er bannaður hefur íslenski hesturinn verið einangraður í nokkuð langan tíma. Hann hefur því þróast óhað þróunum í öðrum heimsálfum.
Gangtegundir
Íslenski hesturinn er þekktur fyrir sínar fimm ólíku gangtegundir;
fet,
brokk,
stökk,
tölt og
skeið. Tölt er einstakt fyrir íslenska hestinn.
Litir
Íslenski hesturinn hefur mjög marga grunnliti og ennþá fleiri litasamsetningar. Frá leirljósu að jörpu, frá glóbjörtu til móvindótts. Í hrossum almennt eru 15 litasæti sem stjórna litaerfðum hestsins og er íslenski hesturinn talinn hafa að minnsta kosti 11 þeirra, sem eru eftirfarandi:
- A: Erfðavísir sem ákveður hvort hrossið verður brúnt eða rautt. Þetta sæti vísar einnig í jarpt og ákveður hvort jarpur litur komi fram eða ekki.
- B: Ákveður hvort húðin framleiði litarefni fyrir svart eða mórautt. Ekki er vitað um mórauð, íslensk hross svo það er gert ráð fyrir að öll íslensk hross hafi hér svart í sætinu.
- C: Ræður hvort litastyrkur í hárum hrossins verður fullur eða deyfður.
- Ch: Er erfðavísir fyrir glólitina svokölluðu; glóbrúnt, glómoldótt og glóbjart.
- Dn: Litasætið Dn ræður því hvort hárin verða bleikt eða óbleikt. Í þessu sæti ræðst einnig hvort hrossið verði bleikálótt eða ekki.
- E: Þetta sæti ræður því hvort hrossið verði svart eða rautt, ásamt A-sætinu. Þetta skilur því brún hross frá jörpu annars vegar og frá rauðum hins vegar.
- G: Tekur fram hvort hrossið verði grátt. Grá hross eru nefninlega fædd í sínum grunnlitum en grána síðan fljótt á bolinn þegar þau taka fyrstu vetrarhárin.
- Rn: Rn-sætið eða Roan-sætið tekur fram hvort hrossið verður litförótt eða ekki. Arfhrein litförótt fóstur deyja á meðgöngu og því fyrirfinnst enginn arfhrein litföróttur íslenskur hestur. Litförótt lýsir sér þannig að hrossið hefur sinn tiltekna grunnlit en verður árstíðabundið grár því undirhárin eru grá en vindhárin í grunnlit hestsin.
- Spl: Er erfða-sætið fyrir slettuskjóttan lit. Slettuskjótt hross eru hvít á neðri hluta líkama en hvítu skellurnar ná aldrei upp yfir hrygg.
- To: Tobiano-sætið, eða skjóttasætið ræður hvort hrossið verði skjótt eða ekki. Skjótt hross eru í raun litlaus á þeim skellum sem eru hvítar. Í húðinni á þessum stöðum eru engin litkorn í húðfrumunum.
- Z: Erfðavísir fyrir vindóttu er í þessu sæti. Svört hross verða móvindótt, jörp hross verða rauðvindótt, móálótt hross verða mósvindótt en hefur engin áhrif á rauð hross.
Heimild
Íslenski hesturinn
Islandsk hest | Isländer (Pferd) | Icelandic horse | Islanninhevonen | Cheval islandais | IJslander (paard) | Islandshest | Islandshäst